Undurfagra ævintýr 1933-2019

Undurfagra ævintýr 1933-2019

Upphaflegt verð
6.900 kr
Útsöluverð
6.900 kr

Höfundur: Laufey Jörgensdóttir

Þessi bók á sér merka sögu. Upphafið má rekja til ársins 1933 þegar tveir vaskir menn í Vestmannaeyjum, þeir Oddgeir Kristjánsson og Árni úr Eyjum, settu saman fyrsta þjóðhátíðarlagið og -ljóðið. Síðan þá hafa fjölmargar tónlistarperlur verið þræddar á langa festi Þjóðhátíðar og lögin orðin sjötíu og sjö talsins.

Undurfagra ævintýr 1933-2019 – þjóðhátíðarlög Vestmannaeyja og þjóðhátíðarmenning

Í bókinni er saga þjóðhátíðarlaga Vestmannaeyja rakin frá öndverðu. Ljóð og textar, gítarhljómar, minningar úr Herjólfsdal, viðtöl við höfunda og flytjendur ásamt fjölda fallegra ljósmynda sameinast í undurfögru ævintýri.

Hægt er að hlusta á þjóðhátíðarlögin úr bókinni með því að skanna kóða með síma.